issa.bloggar.is
SöngvakeppnirÍris Valgeirsdóttir
Ég fór allt í einu að hugsa um það afhverju í ósköpunum við erum að senda einhvern að keppa í júróvisíon? Ég meina við erum án efa eitt af hötuðustu löndum í heiminu og það á engin eftir að kjósa okkur. Þetta er bara tímaeyðsla og peningaeyðsla. Ef eitthvað er þá á að vera að spara alla aura sem til eru. Svo er það íslenska Idolið, Guð minn góður hvað það er algjörlega ömurlegt sjónvarpsefni. Þessir söngvarar eru bara alls ekki að gera sig nema ein sem ég man ekki hvað heitir. Ég fékk þvílíkan kjánahroll þegar ég horfði á þetta um seinustu helgi. Líklega er samt fullt af fólki sem vill horfa á þetta, ég geri það bara af því það er bókstaflega ekkert annað í sjónvarpiu. Það eru veikindi hérna á heimilinu, Telma Lovísa er komin með kvefpest en ég vona að hún nái sér um helgina og geti keppt á móti Leikni á sunnudaginn. Solla er líka orðin ansi kvefuð og með mikinn hósta, vonandi verður ekkert meira af því. Við erum að fara í mat til pabba á sunnudaginn, það verður voðalega fínt að hitta fólkið mitt. Það gefur mér svo mikla orku. Vell ég ætla að hætta núna og drífa mig í bæli. Þakka þeim sem hlýddu
Luv Issa
Öskudagurinn.....Íris Valgeirsdóttir
rann nokkuð ljúflega niður. Sólveig Eva fór sem lítil sæt kisulóra í leikskólan og Telma var uuuuuuu hvað get ég sagt uuuuuu tvöföld. Eða hún og Jóhanna vinkona hennar tóku föt sem var búið að taka úr umferð, klipptu í tvennt og Amma Áslaug saumaði svo hlutana saman þannig að þær voru í fínum fötum hægra megin en í ljótum fötum vinstra megin mjög mjög flott. Eins og venjulega á miðvikudögum fórum við stelpurnar út á Nes í mat til pabba og Áslaugar og það voru mjög góðar kjötbollur í matinn. Það verður einhver tími þar til ég fer næst því að ég er búin að fá aukavinnu á Subway á mánudags og fimmtudags kvöldum og svo annan hvorn föstudag. Pabbi ætlar að passa stelpurnar á mán og fim kvöldum þannig að það er óþarfi að þær fari 3 kvöld í viku út á nes. Ég er að vinna 3 tíma eða frá 17:30-20:30 og ég vona að þetta gangi upp því guð veit að ég hef ekki nóg til að lifa af ef ég verð bara á læknastofunni. Unnar minn kemur á föstudaginn, ég verð alveg rosalega glöð að sjá hann, alltaf gott að hafa stóran og sterkan karlmann á heimilinu til tilbreytingar.Reyndar er ég svo sem ekkert vön að hafa stóran og sterkan karlmann á heimilinu þar til Unnar varð stór HEHEHE (skot á Garðar!!!!!) Veit ekki alveg hvað við gerum um helgina en ég finn upp eitthvað skemmtilegt. Kannski húsdýragarðurinn, sund, bíó eða fara í heimsókn. Kannski gerir maður þetta allt
hvur veit. Vell ekkert merkilegt svosem í gangi, er eitthvað mjög andlaus þessa stundina en það hlýtur að lagast með tíð og tíma. Bið að heilsa ykkur öllum sérstaklega þér Linda mín þar sem þú virðist vera sú eina sem lest þetta.
Luv Issa
Ef ég lofa að.......Íris Valgeirsdóttir
Skrifa hérna allavega 3x í viku mynduð þið þá lesa það? Ég ætla að skrifa núna og sjá svo til. Ég er að reyna að svæfa Sollu en ætli það endi ekki þannig að hún svæfir mig. Hún er svo óþekk að fara að sofa að það nær nú ekki nokkru tali. Ég er byrjuð í nýrri vinnu sem er á læknamiðstöð Austurbæjar. Þar er ég í móttökunni og líkar alveg svakalega vel. Eins og venjulega er ég að vinna með alveg stórskemmtilegu fólki og ég finn það á mér að þarna er ég að eignast virkilega góða vini. Ég er að vinna frá 9-14 á daginn sem er allt annað en að vera frá 10-21 eins og var hjá pizza hut. Þegar ég er búin í vinnunni á daginn þá dríf ég mig í ræktina í Baðhúsinu sem er alveg rétt hjá. Ég er alveg svakalega dugleg og núna er að duga eða drepast. Ég ákvað að gera þetta því ég vil endilega halda áfram að léttast en ég er semsagt búin að missa 32 kíló síðan Garðar fór frá mér þannig að það er eitthvað sem ég get þakkað honum fyrir Hehe. Ég ætla að stimpla mig rækilega inn í nýju vinnuna og halda smá teiti á laugardaginn hérna í Hraunbæ 132. Það verður ofsa fínt, ég ætla að vera með eitthvað smotterí að eta, svo verður aðeins drukkið, hlegið, og bara yfirhöfuð haft gaman af lífinu.Ég og Magga (ein af nýju bestu vinkonu) ætlum að kenna diskódans (Finnsku útgáfuna) þannig að það verður engin amatördans í þessu partýi. Þeir sem mig þekkja vita að ég held alveg svakalega skemmtileg partei. Ég á eftir að hafa svokallað "innflutningspartí" en ég er alltaf búin að vera að vinna þegar það eru pabbahelgar að ég hef aldrei lagt í það. Ég er alveg staðráðin í því að halda eitt slíkt innan tíðar og bjóða þá öllum sem skipta mestu máli. Lífið er alveg að verða bærilegt núna en ég á samt langt í land með að ná mér eftir þessi ósköp. Það koma alltaf einhverjir toppar en svo kemst ég yfir það og held áfram. Maður tekur þetta bara skref fyrir skref. Ég á eftir að standa uppi sterkari en allir og þeir sem gera ljóta hluti fá það í bakið einhvern daginn. það er ég alveg viss um. Vell nóg af þessum leiðindarhlutum, ég ætla bara að kveðja núna, Solla sofnuð þannig að ég get farið að sofa líka. Hlakka til að heyra frá ykkur dyggu lesendum og stuðningsmönnum þarna útiVerið hress
Luv Issa
Fékk enn eitt kastiðÍris Valgeirsdóttir
Og þá er ég ekki að meina reiðikast hehe. Væri samt óskandi að það væri bara reiðikast en ekki enn eitt ömurlegt flogakast
. Var á stylenum hjá elsku Elísu minni þegar ósköpin dundu yfir. Flutt með líbarkújs á ER en jafnaði mig fljótt. Fór svo til pabba þar sem elskurnar mínar voru og síðan heim. Líður ágætlega núna, frekar mikið þreytt og er því að skríða í bælið. Á morgun ætlar Elsa að koma í borgina og við ætlum á fridays í lunch, gaman gaman. Vell þetta var svona létt og laggott ( ekki smérið) hjá mér núna, andinn ekki yfir mér enda bara flogaveik ljóska hehe. Heyrumst síðar.Luv issa
Same old, same oldÍris Valgeirsdóttir
Svo sem ekkert merkilegt sem gerist hjá mér þessa dagana. Maður vaknar við hvíta jörð og langar að syngja jólalög en ég væri líklega komin með ógeð ef ég færi að gera það núna. Yfirleitt byrja ég að vinna kl 10 á morgnana og ég hélt að dagurinn í dag væri engin undantekning en þegar ég mætti í morgun, eftir að hafa eytt 10 mín í það að hreinsa bílinn vel og vandlega, þá var tekið á móti mér með þeim orðum að ég ætti ekki að mæta fyrr en kl 17. Ég varð eiginlega alveg hoppandi glöð, fór heim borðaði smá ( lystin ekki alveg komin eftir gubbuna) og lagði mig svo, voooooððððalega næs
. Var svo að vinna frá fimm til rúmlega tíu. Ég var að lesa gömul blogg hjá mér í gær og ég verð að viðurkenna að þau voru allt í lagi til aflestrar. Ég skrifaði eðlilega mikið um Garðar enda var hann svo ofsalega stór partur af lífinu og hefur alla tíð verið. Núna er alveg risastórt tómarúm þar sem hann var og ég vona að einn daginn verður það fyllt með einhverju öðru. Krakkarnir eru það sem skipta öllu máli og ég vona bara að það sem er búið að gera þeim sé ekki bara einhver bóla sem á eftir að springa. Um helgina er vetrarfrí hjá Telmu og Unnari. Unnar kemur til mín á föstudaginn og fer heim á mánudaginn og eins og venjulega er ég alveg rosalega ánægð að hafa hann hjá mér. Við erum svo sem ekkert búin að plana en það er líka bara allt í key. Reyndar á laugardaginn fara stelpurnar og gista hjá Krissu og Tóta því ég er að fara á staffa jamm. Ætla nú að vera alveg róleg í tíðinni þar því ég nenni ekki að vera slöpp þegar krakkarnir eru hjá mér. jæja ætli það sé ekki rétt að ég fari að halla mér, á að vinna kl 10 á morgun, engin misskilingur þar á ferðinni. Lifið heil
Love Issa
Margt nýtt búið að gerastÍris Valgeirsdóttir
Já það eru miklar breytingar í lífinu hjá manni. Ég er sem sagt opinberlega fráskilin(að austan) og er flutt í höfuðborgina a.k.a REYKJAVÍK
Maður er alveg að standa sig hérna, Ég er búin að fá alveg frábæra vinnu sem vaktstjóri hjá Pizza Hut
reyndar er vinnutíminn frekar langur en það verður bara að hafa sig. Maður er líka bara svo glaður að vera með vinnu þegar ástandið er svona á Íslandi. Ég er búin að koma mér vel fyrir hérna í Hraunbænum allt voðalega fínt og ég hef fengið alveg rosalega mikla hjálp frá öllum, en pabbi er samt alveg að bjarga mér bókstaflega. Hann er að passa stelpurnar langt fram á kvöld þegar ég er að vinna og hann er búinn að hjálpa mér með allt sem viðkemur heimilinu. Hann er alveg einstakur hann pabbi og ég fæ aldrei fullþakkað honum fyrir allt sem hann hefur gert hérna. Það er á svona tímum sem maður áttar sig á því hvað er mikilvægt í lífinu og maður áttar sig virkilega á því hverjir eru sannir vinir. Það fólk sem ég hélt að væru góðir vinir mínir eru það líklega ekki því annars væri það líklega búið að hafa samband síðan ég flutti í byrjun ágúst. Nei það er ekki svo gott og núna standa eftir þeir sem eru alvöru vinir og mér þykir alveg ógurlega vænt um þá alla. Stelpurnar eru að pluma sig vel hérna, Telma átti eðlilega svolítið erfitt hérna í byrjun því það er náttúrulega búið að rífa hana upp með rótum. Þetta er ofsalega stór skóli og það hefur eitthvað gengið brösulega að eignast vini en þetta er allt á réttri leið núna. Solla er bara eins og hún er vön en hefur samt átt þá daga að hún hefur grátið eftir pabba sínum
sem náttúrulega rífur mann í hjartastað. Hún er á leikskólanum Rofaborg sem er bara hérna rétt hjá og við löbbum alltaf í leikskólan á morgnan kl 8. Hún er stundum þreytt og pirruð og vill ekki fara í leikskólan "lofaborg" hehe. En maður nær alltaf að tala krílið til. Það gengur eiginlega mjög erfiðlega að venja hana af bleiju, hún segir ekki til og vill alls ekki kúka í klósettið. Hún er kannski bleijulaus allan daginn og ekkert slys gerst en svo kemur hún og biður um að fá bleiju og stuttu síðar er hún búin að kúka í hana. HAHAHA hún er algjörlega einstök þetta barn. En vell þetta er svona smá úrdráttur úr mínu lífi eins og það er í dag. Verið góð hvort við annað. Luv Issan
Erfiðasta blogg fyrr og síðarÍris Valgeirsdóttir
Maður hefur ekki bloggað neitt því að það eru búnir að vera svo ofsalega erfiðir tímar undanfarna mánuði. Það er skemmst frá því að segja að Garðar minn "heittelskaði" er farinn frá mér. Hann hefur verið að halda við hana Hrönn Guðfinnsdóttir, sem var kennarinn hennar Telmu minnar, síðan um áramót og þau ætla sem sagt að gefa skít í alla sem eru í kring um þau til að vera saman. Þetta er búin að vera alveg hræðilegur tími og líklega ætti ég ekki að vera að hella þessu öllu úr mér hérna en ég er bara svo ofsalega reið að ég verð að skrifa og skrifa um þetta. Ég og stelpurnar eru að flytja í borgina strax eftir verslunnarmannhelgi, verðum í Hraunbænum sem er örugglega mjög góður staður að vera með börn á. Skólinn hennar Telmu er bak við blokkina sem við búum í og leikskólinn hennar Sollu þar við hliðina. Konan hans pabba á íbúðina og ég leigi af henni og það er alveg frábært að þetta gekk svona hratt fyrir sig. Unnar verður hérna í Norðurbyggðinni með pabba sínum og mig kvíður alveg svakalega fyrir því að hafa hann ekki hjá mér alla daga. En hann vill vera áfram í FSU og ég skil það alveg og hann er búinn að lofa að koma hverja helgiKveðja Issa einstök mamma
úff hvað maður er ekki að gera sig........Íris Valgeirsdóttir
hérna í bloggheimum enda er maður bara bissí skólastelpakveðja Issa byssa
Jólin koma Jólin komaÍris Valgeirsdóttir
Já þetta styttist og styttist, jólin eru alveg að koma og ÉG hlakka svo mikið til (engin þágufallssýki hérluv Issa
Og ég er að fara........Íris Valgeirsdóttir
í FSU eftir áramót. Ég er semsagt búin að skrá mig á Sjúkraliðabraut og er bara ansi spennt verð ég að viðurkenna. Unnari finnst það svolítið skrýtið að ég verði með honum í skólanum en hann verður bara að venjast því. Ég er búin að lofa að láta hann nokkurn vegin vera en ég er samt nokkuð viss um að þegar honum vantar pening þá verður voða gott að hafa mömmubanka á staðnum
. Planið er að klára þetta á sem stystum tíma og fara svo í Háskólann og læra hjúkrun og taka jafnvel ljósmóðurnám í framhaldinu. Mikið væri það gaman. Ég fór með nokkrum góðum túttum á George Michael sjóvið um seinustu helgi og skemmti mér alveg svakalega vel. Ég söng mig hása og er engu búin að gleyma frá þessum æðislega tíma. Mig langar bara að fara aftur. Það er samt alveg nóg um að vera framundan, Um helgina förum við í afmæli hjá?????? (systir hans tengdapabba) en ég er víst að fara ein með Unnari og Telmu Lovísu því Garðar er að fara á Stykkishólm með lið að keppa í körfu. Svo á sunnudagin er afmæli hjá Brynjari (sem verður 20 ára) og Auði (sem verður 18 ára). Mér finnst það alveg ótrúlegt því þegar ég kynntist Garðari og hans fjölskyldu þá var brynjar bara 3 ára og Auður bara eins árs. Ótrúlegt hvað þetta er allt fljótt að líða. Vell það er víst best að fara að drífa sig í rúmið. Verið hress ekkert stress og Bless bless
Issa







