Aðalvalmynd

Nýjast á HumorPix

Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay.. Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit

Auglýsing

Nýjast á B2.is

Tenglar

Teljari

Gagnasafn

Prófíll

Og ég er að fara........Íris Valgeirsdóttir

í FSU eftir áramót. Ég er semsagt búin að skrá mig á Sjúkraliðabraut og er bara ansi spennt verð ég að viðurkenna. Unnari finnst það svolítið skrýtið að ég verði með honum í skólanum en hann verður bara að venjast því. Ég er búin að lofa að láta hann nokkurn vegin vera en ég er samt nokkuð viss um að þegar honum vantar pening þá verður voða gott að hafa mömmubanka  á staðnum Glottandi. Planið er að klára þetta á sem stystum tíma og fara svo í Háskólann og læra hjúkrun og taka jafnvel ljósmóðurnám í framhaldinu. Mikið væri það gaman. Ég fór með nokkrum góðum túttum á George Michael sjóvið um seinustu helgi og skemmti mér alveg svakalega vel. Ég söng mig hása og er engu búin að gleyma frá þessum æðislega tíma. Mig langar bara að fara aftur. Það er samt alveg nóg um að vera framundan, Um helgina förum við í afmæli hjá?????? (systir hans tengdapabba) en ég er víst að fara ein með Unnari og Telmu Lovísu því Garðar er að fara á Stykkishólm með lið að keppa í körfu. Svo á sunnudagin er afmæli hjá Brynjari (sem verður 20 ára) og Auði (sem verður 18 ára). Mér finnst það alveg ótrúlegt því þegar ég kynntist Garðari og hans fjölskyldu þá var brynjar bara 3 ára og Auður bara eins árs. Ótrúlegt hvað þetta er allt fljótt að líða.  Vell það er víst best að fara að drífa sig í rúmið. Verið hress ekkert stress og Bless bless

Issa

Athugasemdir

1
Elsa Gunn skrifar:
Ég er stolt af þér. Knús.
Luv Elsa.
27. nóvember 2007 klukkan 11:52

Skrifa athugasemd

Prófíll

Leikur dagsins

Könnun

Er Reykjavíkurborg borg óttans eður ei?

Prófíll

Klukkan