Já þetta styttist og styttist, jólin eru alveg að koma og ÉG hlakka svo mikið til (engin þágufallssýki hér

) en líklega ekki eins mikið og Garðari sem breytist í eitthvað jólamonster í desember. Ég sagði við hann að hann væri fullkominn í prósak auglýsingu í desember. Hann kom að sækja mig um daginn syngjandi Gleði og friðarjól með Pálma Gunnars röddinni sinni sem ég verð að viðurkenna að er bara nokkuð góð

. Hann er búinn að gera sérstakan jóladisk sem hann spilar óspart upp í íþróttahúsi, baka 3 sortir af jólakökum, setja upp seríur og svona mætti lengi telja. Við erum reyndar ekki búin að kaupa jólagjafir en erum búin að ákveða þær og ætlum að fara einn dag í bæinn að kaupa alla hrúguna. Um daginn fórum við á jólahlaðborð í skíðaskálanum með Elsu, Davíð og börnum. Það var alveg svakalega fínt, Telma og Stebba fóru að dansa í kringum jólatréið og fengu nammipoka sem þær voru rosa ánægðar með en Unnar og Fannar voru svona meira í því að sitja hjá okkur fullorðna fólkinu enda eru þeir komnir á þann aldur að þeir eru ekki mikið í því að dansa í kringum jólatréið

. Á morgun ætla ég að taka businn í bæinn og Elsa kemur að sækja mig og við ætlum að kaupa jólagjafir handa köllunum okkar og kannski eitthvað aðeins meira. Gott í bili, gleði og friðarkveðjur héðan úr Norðurbyggðinni.
luv Issa