hérna í bloggheimum enda er maður bara bissí skólastelpa

. Það gengur alveg ótrúlega vel í skólanum og mér finnst þetta alveg svakalega gaman.Ég er nánast með alveg fulla stundaskrá sem er mjög gott því mér finnst ekkert gaman að vera í eyðu. Reyndar er ég búin að missa svolítið úr þar sem heilsan er ekki upp á marga fiska.Ég er að fá flog nokkuð oft og svo til að kóróna allt þá flaug ég svo svakaleg á hausinn þegar ég var að bera út í gær að ég gat ekki labbað allan daginn. Ég fór svo að vinna um kvöldið og aumingja Elísabet þurfti að leggja til miklu meira vinnuframlag en AUMINGINN

ég. Ég sendi henn blóm einhvern daginn

. Ég fór til Torfa læknis í dag og hann sagði að fyrst ég væri alltaf að fá flog þá þyrftiég að leggjast inn á spítala og vera í sírita heilan sólahring

svo þeir geti séð hvernig flogin haga sér, ekki gaman. Ég er búinn að segja Garðari að hann verði að vera hjá mér ALLAN TÍMANN! hehe hann er ekkert voða glaður með það. Að öðrum málum Fimmtudaginn 21 febrúrar erum við Garðar að fara alein og óstudd til London baby

og ætlum að skemmta okkur alveg svakalega vel. Ég verð að viðurkenna að það er pínu kvíði í mér út af ferðinni bæði út af flogaveikinni og líka út af því að ég veit ekki hvort við Gassi kunnum að hafa það skemmtilegt bara tvö ein saman en mig grunar nú samt að okkur eigi ekkert eftir að leiðast í stórborginni

Jæja þá læt ég þetta gott heita í bili næsta blogg kemur svo 13 apríl 2008 STAY TUNED!
kveðja Issa byssa
Luv Elsa.