issa.bloggar.is
Margt nýtt búið að gerastÍris Valgeirsdóttir
Já það eru miklar breytingar í lífinu hjá manni. Ég er sem sagt opinberlega fráskilin(að austan) og er flutt í höfuðborgina a.k.a REYKJAVÍK
Maður er alveg að standa sig hérna, Ég er búin að fá alveg frábæra vinnu sem vaktstjóri hjá Pizza Hut
reyndar er vinnutíminn frekar langur en það verður bara að hafa sig. Maður er líka bara svo glaður að vera með vinnu þegar ástandið er svona á Íslandi. Ég er búin að koma mér vel fyrir hérna í Hraunbænum allt voðalega fínt og ég hef fengið alveg rosalega mikla hjálp frá öllum, en pabbi er samt alveg að bjarga mér bókstaflega. Hann er að passa stelpurnar langt fram á kvöld þegar ég er að vinna og hann er búinn að hjálpa mér með allt sem viðkemur heimilinu. Hann er alveg einstakur hann pabbi og ég fæ aldrei fullþakkað honum fyrir allt sem hann hefur gert hérna. Það er á svona tímum sem maður áttar sig á því hvað er mikilvægt í lífinu og maður áttar sig virkilega á því hverjir eru sannir vinir. Það fólk sem ég hélt að væru góðir vinir mínir eru það líklega ekki því annars væri það líklega búið að hafa samband síðan ég flutti í byrjun ágúst. Nei það er ekki svo gott og núna standa eftir þeir sem eru alvöru vinir og mér þykir alveg ógurlega vænt um þá alla. Stelpurnar eru að pluma sig vel hérna, Telma átti eðlilega svolítið erfitt hérna í byrjun því það er náttúrulega búið að rífa hana upp með rótum. Þetta er ofsalega stór skóli og það hefur eitthvað gengið brösulega að eignast vini en þetta er allt á réttri leið núna. Solla er bara eins og hún er vön en hefur samt átt þá daga að hún hefur grátið eftir pabba sínum
sem náttúrulega rífur mann í hjartastað. Hún er á leikskólanum Rofaborg sem er bara hérna rétt hjá og við löbbum alltaf í leikskólan á morgnan kl 8. Hún er stundum þreytt og pirruð og vill ekki fara í leikskólan "lofaborg" hehe. En maður nær alltaf að tala krílið til. Það gengur eiginlega mjög erfiðlega að venja hana af bleiju, hún segir ekki til og vill alls ekki kúka í klósettið. Hún er kannski bleijulaus allan daginn og ekkert slys gerst en svo kemur hún og biður um að fá bleiju og stuttu síðar er hún búin að kúka í hana. HAHAHA hún er algjörlega einstök þetta barn. En vell þetta er svona smá úrdráttur úr mínu lífi eins og það er í dag. Verið góð hvort við annað. Luv Issan
Athugasemdir
2
Elsa Gunn skrifar:
Knús
24. október 2008 klukkan 08:49








PS knús til Thelmu og Sollu frá mér og bið að heilsa Unnari