issa.bloggar.is
Same old, same oldÍris Valgeirsdóttir
Svo sem ekkert merkilegt sem gerist hjá mér þessa dagana. Maður vaknar við hvíta jörð og langar að syngja jólalög en ég væri líklega komin með ógeð ef ég færi að gera það núna. Yfirleitt byrja ég að vinna kl 10 á morgnana og ég hélt að dagurinn í dag væri engin undantekning en þegar ég mætti í morgun, eftir að hafa eytt 10 mín í það að hreinsa bílinn vel og vandlega, þá var tekið á móti mér með þeim orðum að ég ætti ekki að mæta fyrr en kl 17. Ég varð eiginlega alveg hoppandi glöð, fór heim borðaði smá ( lystin ekki alveg komin eftir gubbuna) og lagði mig svo, voooooððððalega næs
. Var svo að vinna frá fimm til rúmlega tíu. Ég var að lesa gömul blogg hjá mér í gær og ég verð að viðurkenna að þau voru allt í lagi til aflestrar. Ég skrifaði eðlilega mikið um Garðar enda var hann svo ofsalega stór partur af lífinu og hefur alla tíð verið. Núna er alveg risastórt tómarúm þar sem hann var og ég vona að einn daginn verður það fyllt með einhverju öðru. Krakkarnir eru það sem skipta öllu máli og ég vona bara að það sem er búið að gera þeim sé ekki bara einhver bóla sem á eftir að springa. Um helgina er vetrarfrí hjá Telmu og Unnari. Unnar kemur til mín á föstudaginn og fer heim á mánudaginn og eins og venjulega er ég alveg rosalega ánægð að hafa hann hjá mér. Við erum svo sem ekkert búin að plana en það er líka bara allt í key. Reyndar á laugardaginn fara stelpurnar og gista hjá Krissu og Tóta því ég er að fara á staffa jamm. Ætla nú að vera alveg róleg í tíðinni þar því ég nenni ekki að vera slöpp þegar krakkarnir eru hjá mér. jæja ætli það sé ekki rétt að ég fari að halla mér, á að vinna kl 10 á morgun, engin misskilingur þar á ferðinni. Lifið heil
Love Issa







