Aðalvalmynd

Nýjast á HumorPix

Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay.. Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit

Auglýsing

Nýjast á B2.is

Tenglar

Teljari

Gagnasafn

Prófíll

Ef ég lofa að.......Íris Valgeirsdóttir

Skrifa hérna allavega 3x í viku mynduð þið þá lesa það? Ég ætla að skrifa núna og sjá svo til. Ég er að reyna að svæfa Sollu en ætli það endi ekki þannig að hún svæfir mig. Hún er svo óþekk að fara að sofa að það nær nú ekki nokkru tali. Ég er byrjuð í nýrri vinnu sem er á læknamiðstöð Austurbæjar. Þar er ég í móttökunni og líkar alveg svakalega vel. Eins og venjulega er ég að vinna með alveg stórskemmtilegu fólki og ég finn það á mér að þarna er ég að eignast virkilega góða vini. Ég er að vinna frá 9-14 á daginn sem er allt annað en að vera frá 10-21 eins og var hjá pizza hut. Þegar ég er búin í vinnunni á daginn þá dríf ég mig í ræktina í Baðhúsinu sem er alveg rétt hjá. Ég er alveg svakalega dugleg og núna er að duga eða drepast. Ég ákvað að gera þetta því ég vil endilega halda áfram að léttast en ég er semsagt búin að missa 32 kíló síðan Garðar fór frá mér þannig að það er eitthvað sem ég get þakkað honum fyrir Hehe. Ég ætla að stimpla mig rækilega inn í nýju vinnuna og halda smá teiti á laugardaginn hérna í Hraunbæ 132. Það verður ofsa fínt, ég ætla að vera með eitthvað smotterí að eta, svo verður aðeins drukkið, hlegið, og bara yfirhöfuð haft gaman af lífinu.Ég og Magga (ein af nýju bestu vinkonu) ætlum að kenna diskódans (Finnsku útgáfuna) þannig að það verður engin amatördans í þessu partýi. Þeir sem mig þekkja vita að ég held alveg svakalega skemmtileg partei. Ég á eftir að hafa svokallað "innflutningspartí" en ég er alltaf búin að vera að vinna þegar það eru pabbahelgar að ég hef aldrei lagt í það. Ég er alveg staðráðin í því að halda eitt slíkt innan tíðar og bjóða þá öllum sem skipta mestu máli. Lífið er alveg að verða bærilegt núna en ég á samt langt í land með að ná mér eftir þessi ósköp. Það koma alltaf einhverjir toppar en svo kemst ég yfir það og held áfram. Maður tekur þetta bara skref fyrir skref. Ég á eftir að standa uppi sterkari en allir og þeir sem gera ljóta hluti fá það í bakið einhvern daginn. það er ég alveg viss um. Vell nóg af þessum leiðindarhlutum, ég ætla bara að kveðja núna, Solla sofnuð þannig að ég get farið að sofa líka. Hlakka til að heyra frá ykkur dyggu lesendum og stuðningsmönnum þarna úti
Verið hress

Luv Issa

Athugasemdir

1
Linda Kolbrún skrifar:
Ég ætla sko að lesa ef þú skrifar 3x í viku...lofa. Annars er ég alveg svakalega stolt af þér hvað þú ert dugleg í ræktinni...og bara alltaf. Svo verðum við að fara að gera eitthvað skemmtilegt fljótlega...ég er komin í rosalegan spreng að þurfa að hlægja rækilega. Knús og kossar:)
25. febrúar 2009 klukkan 19:00

Skrifa athugasemd

Prófíll

Leikur dagsins

Könnun

Er Reykjavíkurborg borg óttans eður ei?

Prófíll

Klukkan