issa.bloggar.is
Öskudagurinn.....Íris Valgeirsdóttir
rann nokkuð ljúflega niður. Sólveig Eva fór sem lítil sæt kisulóra í leikskólan og Telma var uuuuuuu hvað get ég sagt uuuuuu tvöföld. Eða hún og Jóhanna vinkona hennar tóku föt sem var búið að taka úr umferð, klipptu í tvennt og Amma Áslaug saumaði svo hlutana saman þannig að þær voru í fínum fötum hægra megin en í ljótum fötum vinstra megin mjög mjög flott. Eins og venjulega á miðvikudögum fórum við stelpurnar út á Nes í mat til pabba og Áslaugar og það voru mjög góðar kjötbollur í matinn. Það verður einhver tími þar til ég fer næst því að ég er búin að fá aukavinnu á Subway á mánudags og fimmtudags kvöldum og svo annan hvorn föstudag. Pabbi ætlar að passa stelpurnar á mán og fim kvöldum þannig að það er óþarfi að þær fari 3 kvöld í viku út á nes. Ég er að vinna 3 tíma eða frá 17:30-20:30 og ég vona að þetta gangi upp því guð veit að ég hef ekki nóg til að lifa af ef ég verð bara á læknastofunni. Unnar minn kemur á föstudaginn, ég verð alveg rosalega glöð að sjá hann, alltaf gott að hafa stóran og sterkan karlmann á heimilinu til tilbreytingar.Reyndar er ég svo sem ekkert vön að hafa stóran og sterkan karlmann á heimilinu þar til Unnar varð stór HEHEHE (skot á Garðar!!!!!) Veit ekki alveg hvað við gerum um helgina en ég finn upp eitthvað skemmtilegt. Kannski húsdýragarðurinn, sund, bíó eða fara í heimsókn. Kannski gerir maður þetta allt
hvur veit. Vell ekkert merkilegt svosem í gangi, er eitthvað mjög andlaus þessa stundina en það hlýtur að lagast með tíð og tíma. Bið að heilsa ykkur öllum sérstaklega þér Linda mín þar sem þú virðist vera sú eina sem lest þetta.
Luv Issa







