issa.bloggar.is
SöngvakeppnirÍris Valgeirsdóttir
Ég fór allt í einu að hugsa um það afhverju í ósköpunum við erum að senda einhvern að keppa í júróvisíon? Ég meina við erum án efa eitt af hötuðustu löndum í heiminu og það á engin eftir að kjósa okkur. Þetta er bara tímaeyðsla og peningaeyðsla. Ef eitthvað er þá á að vera að spara alla aura sem til eru. Svo er það íslenska Idolið, Guð minn góður hvað það er algjörlega ömurlegt sjónvarpsefni. Þessir söngvarar eru bara alls ekki að gera sig nema ein sem ég man ekki hvað heitir. Ég fékk þvílíkan kjánahroll þegar ég horfði á þetta um seinustu helgi. Líklega er samt fullt af fólki sem vill horfa á þetta, ég geri það bara af því það er bókstaflega ekkert annað í sjónvarpiu. Það eru veikindi hérna á heimilinu, Telma Lovísa er komin með kvefpest en ég vona að hún nái sér um helgina og geti keppt á móti Leikni á sunnudaginn. Solla er líka orðin ansi kvefuð og með mikinn hósta, vonandi verður ekkert meira af því. Við erum að fara í mat til pabba á sunnudaginn, það verður voðalega fínt að hitta fólkið mitt. Það gefur mér svo mikla orku. Vell ég ætla að hætta núna og drífa mig í bæli. Þakka þeim sem hlýddu
Luv Issa







