Ađalvalmynd

Nýjast á HumorPix

Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay.. Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit

Auglýsing

Nýjast á B2.is

Tenglar

Teljari

Gagnasafn

Prófíll

PirrandiÍris Valgeirsdóttir

ÖskrandiJá það sem er að pirra mig mjög mikið þessa stundina er að ég finn ekki snúruna til að tengja myndavélina við tölvuna. Hann Gassi Geirfinns týndi henni einhverstaðar upp í íþróttahúsdruslunni þegar hann var að hlaða inn myndum frá því við fórum norður í sumar. Ég er með fulla vél af myndum og get ekkert gert við þær og ég get ekki heldur tekið myndir. Þannig að ég á Sollu labbandi ekki á mynd og ég á ekki fyrsta snjó vetrarnis á mynd ekki gat ég tekið neitt á truntuballinu eða af Unnari með 4 faldan frankenstæn fót. Þetta pirrar mig alveg í það óendanelga. En vell koma tímar koma ráð ég finn eitthvað út úr þessu. Eins og flestir vita þá er fyrsti snjórin fallinn og allt er SVOOOOO jólalegt. Sólveig Eva var svo undrandi að sjá snjóin í morgun að ég vissi ekki hvert hún ætlaði. Ég leyfði henni að halda á smá snjó og það var geðveikt fyndið. Hún horfði á hann og svo smakkaði hún smá og svo hristi hún hendina (og ég gat EKKI tekið mynd af þessuÖskrandi) Svo er þessi snjór barasta farin á morgun og kemur ekki aftur fyrr en um jólin eða það vona ég. Ég gat nú ekki annað en skrifað comment á blogg síðuna hans Magnúsar hjá frjálslynda flokknum. Mér finnst það svolítið vanta í þessa innflytjenda umræðu að minna fólk á að ef "þetta fólk" væri ekki að vinna þessi fiskvinnslustörf þá væru meira og minna öll frystihús á hausnum því það fást engir Íslendingar til að vinna þetta. Og svo annað hvað myndu við íslendingar segja ef okkur væri bannað að fara til Danmerkur að vinna eða fara í skóla. Við hljótum að vera innflytjendur þar ekki satt. Þá myndi nú heyrast hljóð úr horni. En þetta er nú bara mín skoðun, að sjálfsögðu verður að vera meiri regla á þessu en við hljótum nú að geta leyst úr því ekki satt. Svo finnst mér vera svakalega margt sem við getum lært af öðrum þjóðum eða hvað? en nóg um þetta, við hjónin erum að fara á haustgleði Kaupás annað kvöld í Salnum í Kópavogi. Þar verða Magni og co með tónleika og svo verða veitingar í hléi ekkert smá mikið stuð. Þetta verður einhversskonar upphitun fyrir stórtónleikana í Laugardagshöll 30 nóv n.k. en ég og Gassi erum að fara með Elsu og Dabba á þá. Úff hvað mig hlakkar til. Það er alltaf eitthvað sem maður getur hlakkað til. það er t.d hægt að láta sig hlakka til  endlausra  jólhlaðborða eða 3.  Eitt með starfsfólki Ölfus á Rauða húsinu, eitt með Herjólfi í Vestmannaeyjum og svo hið langþráða í Perlunni með Lindu og Bjögga. Svo er líka hægt að láta sig hlakka haustgleði Bleiksmanna 17 nóv hjá Jóhönnu og Ragga, það verður algjör snilld eins og alltaf þegar þessi hópur hittist. En nú er nóg komið af þessari langloku. Bið að heilsa

Issa Koss

Brjúlađ veđurÍris Valgeirsdóttir

já það er búið að vera alveg crazý veður í dag og engin ferð hjá Herjólfi. Sem þýðir það að á morgun verður fólk alveg crazý crazý að reyna að komast með bátnum en það á ekki eftir að ganga þar sem báðar ferðir eru blindfullar eins og mýsnar í samræmdaprófinu hjá 4 bekk. Þegar það er svona leiðindar veðurfar þá er bara eitt sem ég er í skapi fyrir og það er bakstur þannig að ég er búin að baka eina GEÐVEIKA súkkulaðiköku í dag (hún er utan á kökublaði Gestgjafan) hún var sko algjör snilld get ég sagt ykkurUllandi. Ég er að hugsa um að baka aðeins meira í kvöld ég er bara alveg í bakstursfíling. Við fórum í borg óttans í gær og keyptum eina jólagjöf. Maður er svo skipulagður að það er nú ekki eðlilegt. Ég keypti mér buxur og bol eða reyndar bara bol því ég hitti Krissu systir og hún gaf mér buxurnar því hún sagðist skulda mér afmælisgjöf þannig að ég græddi aldeilis á þessu. Annars er bara allt í rólegheitum hérna og ekkert mikið að gerast eins og fyrri daginn. Maður er bara farin að telja niður í jólin og þá er nú ekki langt í London baby Glottandi.
jæja nú læt ég staðar numið í bili
hafið það gott í óveðrinu

IssaKoss

MýrinÍris Valgeirsdóttir

Ungur maður: " Góðan daginn, Uh eh hefur þér verið nauðgað?"
Gömul kona:" HA?!!!"
Ungur maður:"Nauðgað? hefur þér verið Nauðgað
Nauðgað sagði ég nauðgað!!"
Gömul kona :" Já, Nei takk"

Snilld

Mayday mayday ég held ađ viđ séum ađ sökkva!!!!Íris Valgeirsdóttir

 Þetta voru skilaboðin sem komu í talstöðinni í vinnunni í dag. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður heyrir þessi orð og  ég verð nú að segja að ég hefði haldið að þegar ég heyrði þau þá myndi ég taka þau frekar alvarlega.En það var nú öðru nær mér fannst þetta bara fyndið. Þeir voru víst út á gúmmbát og hann var ekki alveg að virka rétt. En þetta reddaðist thank god. Á móti kemur að mér datt bara eitt lag í hug þegar ég heyrði þetta og það lagið my heart will go on úr Titanic og ég er búin að vera syngja það í allan liðlangan dag. Ekki bætti úr skák að Lalli fékk það líka á heilan og var líka að syngja þetta í dag. Ömurlegt get ég sagt ykkur en þó skárra en Boten Anna (sem var samið um hana Önnu MögguHlæjandi) Á eftir ætlum við hjónakornin að skella okkur í bíó í fyrsta skipti í mjög mjög mjög langan tíma og að sjálfsögðu verður Mýrin fyrir valinu. Hlakka mikið til að sjá hana enda er hún búin að fá gífurlega góða dóma.  jæja þá kveð ég í bili með rassinn í gili

Issa

Jćja ţá......Íris Valgeirsdóttir

er blessaða truntuballið búið og mikið svakalega var þetta nú skemmtilegt. Annars fannst mér það búið altof snemma þeir byrjuðu að spila 12:30 og hættu á slaginu 3 þá voru ljósin kveikt og allir reknir út. Þetta var heldur stutt gaman fannst mér. Maður hefði alveg eins getað sleppt því að fara úr ammilinu hennar Elsu sem var víst ekki veik á síðasta ári (fannst eins og þú hafir verið nýbúin í aðgerðini þá Elsa mín og þess vegna varstu ekki að halda upp á það) en allavega þetta var alveg svakalegt stuð allt saman. Ég var að lesa Fréttablaðið í dag og þar var frétt um það að fólk væri nú bara alveg bit yfir samræmdaprófinu í íslensku fyrir 4.bekk. Þar var saga um hagamús sem komst í jólaöl og varð full (hehe) og spurningin var hvað það þýðir að drekka hóflega og hvort að músin hafi gert það. Mér finnst þetta pínu bjánalegt því að það voru ekki margir sem vissu hvað þetta þýddi (sem betur fer). En mér finnst fólk stundum svolítið upptekið af því að gagnrýna og gagnrýna endalaust. En það er víst bara mín skoðun. Jæja þá ætla ég að hætta þessu bulli og fara að borða þennan dýrindis grjónagraut sem Gassi var að elda. Takk fyrir mig bleble

Issa

Skyr.is- gott í samfellurÍris Valgeirsdóttir

Ég var áðan að lesa gömul blogg sem ég hef ritað og það er ekkert lítið hvað ég var góður penni hérna áður fyrr. Ætli ég hafi ekki misst töchið þegar varð svona eldgömul??!!!! bwahahahah smá grín ég er ekkert gömul. Maður er bara rétt ný skriðin yfir fermingu. Fór í gær á leikinn Þór þorl- Hamar/Selfoss og jesús minn hvað þetta var spennandi leikur. Ég hélt að ég myndi tapa þessari litlu glóru sem ég hef í hausnum. En við UNNUM JIBBÝ þannig að það verður extra mikið jamm á manni í kveld. Ég ætla á eftir í borg óttans að ná í barnapíuna fyrir kvöldið. Þessi elska hún Kara var sko alveg til í þetta þannig að það er bara hið besta mál. jæja ætli ég verði ekki að fara að klæða Sólveig Evu ég þurfti að henda henni í bað því hún komst í skyrdós og var ÖLL ÚT Í SKYR.IS (hey ókeypis auglýsing) . Bið að heilsa gamli vinur og við sjáumst á truntuballi

Háu ljósinÍris Valgeirsdóttir

jebb það er svo svakalega kalt að maður er búin að vera með háu ljósin á í allan dag og þetta ástand er ennþá viðvarandi. Þeir sem ekki skilja hvað ég er að tala um verða bara að fletta upp í túttuorðabókinni. Ég skrapp á Sífó í morgun að útrétta eins og mamma kemst svo skemmtilega að orði. Þegar ég var búin að útrétta þá kíkti ég aðeins á Elín Ernu á Subbarann en maður gat nú ekki látið það fréttast að hafa verið þarna án þess að kíkja á hana. Við áttum hið ánægjulegasta spjall um landsins gagn og nauðsynjar og svo náttúrulega um truntuballið sem allt er að verða vitlaust út af og alveg gífurleg stemming að myndast í þorpinu. Þetta verður alveg suddalegt ball og mikil fiðringur að myndast í mallanum. Annað er svo sem ekki að frétta nema örverpið á heimilinu er farin að labba um allt alveg svakalega dugleg. Maður er svo montin af þessari rúsínu að það nær nú ekki nokkru tali. Jæja góðir hálsar ég bið að heilsa í bili ég ætla að skríða ofan í bað og reyna að losna við háu ljósin Glottandi
Kveðja
Issa

Enn eina ferđina.........Íris Valgeirsdóttir

ætla ég að reyna að halda úti blogg síðu. Ég var komin á svo gott skrið hérna um árið en svo eins og með allt annað þá datt þetta allt saman niður. En allavega þá er ég bara að vinna vinna vinna þessa dagana. Frá 10-12 í herjólfi frá 12-17 í Krónunni og síðan frá 17:30-19:30 í Herjólfi. Svona verður þetta eitthvað því Anna er veik þessa dagana og sendi ég henni hér með baráttu og batakveðjur og vonandi gengur þetta allt barasta mjög vel hjá þér. Annað sem er á döfinni er þetta blessaða truntuball sem verður á laugardaginn. Á undan ætlum við í afmæli Hlæjandihjá henni Elsu sem er að bæta upp frá því á síðasta ári þegar hún varð 30 ára en gat ekki haldið upp á neitt þá vegna veikinda. Þetta verður alveg geðveikt stuð og ég hlakka mikið til. Ætli ég láti þetta ekki bara gott heita í bili en hér eftir þá mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að gera stormandi lukku á blogg sviðinu

kv IssaKoss
Síđa 6 af 6

Prófíll

Leikur dagsins

Könnun

Er Reykjavíkurborg borg óttans eđur ei?

Prófíll

Klukkan